Örnámskeið
10. apríl 2026
Samantekt á örnámskeiðum Laufásborgar í gegnum tíðina
Í á annan áratug hefur Laufásborg staðið fyrir og leitt svokölluð örnámskeið á Laufásborg þar sem kennarar af Laufásborg og foreldrar setjast niður, ræða uppeldið og foreldrahlutverkið. Eftir þessi örnámskeið höfum við alltaf tekið saman helstu atriðin og deilt með ykkur. Í ár langar okkur að fara örlítið aðra leið. Okkar reynsla er að umræðuna ber alltaf að sama brunni og reynslan sýnir að foreldrar eru í grunninn að fást við sömu “vandamálin” þó birtingarmynd þeirra geta verið ólík. Við höfum því tekið saman það helsta sem hefur komið fram á þessum örnámskeiðum í gegnum tíðina.
- Yfirleitt gengur 90% vel í uppeldinu - þökkum fyrir það og horfum til þess, þakklæti og jákvæðni eykur öryggi okkar í uppeldishlutverkinu og valdeflir okkur.
- Að vera uppalandi er okkar stærsta hlutverk í lífinu, það gefur okkur mest en reynir líka mest á okkur sem manneskjur.
- Að barni á leikskólaaldri gangi vel ca. 75% tímans er raunhæft viðmið.
- Öll börn eru að æfa sig í einhverju, æfingin skapar meistarann, og það er ef svo mætti segja hlutverk barna að reyna á rammann, þannig læra þau á lífið.
- Tíminn vinnur með okkur - langflest 3ja til 3ja og hálfs árs börn hafa orðið ágætis sjálfstjórn, orðaforða og skilning og þá leysast mörg “vandamál” af sjálfu sér.
- Þið kæru foreldrar eruð sérfræðingar í ykkar barni, þekkið ykkar barn best af öllum. Uppeldið og nálgunin fer eftir barninu og þið finnið leið sem virkar fyrir ykkur.
- Að ala upp barn er að móta hegðun þess, barn fæðist með ákveðna eiginleika og hefur sinn persónuleika en í gegnum uppeldið teygjum við og togum til þessa eiginleika, leggjum inn viðhorf og samskiptafærni til framtíðar. Kennum jákvæðni og gleðirík viðhorf til lífsins, lausnamiðaða hugsun og eflum framkvæmdarkraft barnsins.
- Í allri hegðunarmótun skiptir meira máli að þið kæru foreldrar séuð sjálfum ykkur samkvæm - að þið beitið aðferðum sem þið hafið trú á í ykkar hjarta. Börn skynja öryggi ykkar og heilindi umfram annað og það skiptir meira máli en endilega að finna “réttustu aðferðina”. Þið eruð ekki “ljósrit” af öðrum, leið annarra er ekki alltaf að fara að henta ykkur, ykkar barni og ykkar aðstæður.
- Ykkar viðbrögð hverju sinni eru rétt miðað við aðstæður, þekkingu ykkar og reynslu hverju sinni - en svo getið þið alltaf valið að læra af því og gera betur næst.
- Þú ert besta foreldrið fyrir þitt barn - foreldri vill barninu sínu allt það besta. Sektarkennd, efi og áhyggjur lyfta engum og það er mjög mikilvægt fyrir andlega heilsu hvers og eins okkar að líða vel með sitt framlag.
NÚTÍMASAMFÉLAGIÐ OG UPPELDI
Í nútímasamfélagi eru barnafjölskyldur sá hópur sem er undir hvað mesta álaginu - sýnið ykkur sjálfsmildi, það er vandlifað.
Líf hvers og eins okkar er tilraun sem hefur aldrei verið gerð áður - við erum öll að finna út úr hlutunum, engin/n annar en við veit hvað hentar okkur best hverju sinni.
Við finnum lífstakt sem hentar okkar fjölskyldu - einföldum það sem við getum einfaldað, flækjum annað, eltum ekki ólar við “öll nýjustu trendin” eða gamlar hefðir sem virka ekki fyrir okkar fjölskyldu. Það er ofgnótt af uppeldisráðum sem flest stangast hvert á við annað. Í lok dags erum það við sem þurfum að leysa verkefnið, við sem þurfum að vinna vinnuna.
Foreldrar og uppeldishlutverkið mótast af samfélaginu hverju sinni og okkar reynsla er að foreldrar nú til dags eru mjög kærleiksríkir, þolinmóðir og þjónustuglaðir. Skuggahliðin af því er að við getum verið “þroskaþjófar” barnanna okkar. Í “misskilinni góðmennsku” tökum við af þeim áskoranir og verkefni sem gætu eflt sjálfstraust þeirra. Þegar börn hafa aldur og þroska til getum við smám saman lækkað þjónustustigið, það hvetur þau til að æfa sig í að bjarga málunum og gera hlutina sjálf.
Að barn hafi stöðu barns inn á heimilinu merkir að foreldrið er við stjórnvölinn, tekur ábyrgð á þróun mála, leggur línurnar og tryggir öryggi og vellíðan barns. Það er heilbrigt fyrir barn að foreldrið hafi stöðu fullorðins og barnið stöðu barns.
Að barn komi vel úthvílt og í jafnvægi inn í leikskóladaginn gerir gæfumuninn. Nútímasamfélagið hefur normaliserað “fulla vinnuviku” hjá börnum á leikskólaaldri og það er ekki alltaf í þágu barnanna. Höfum í huga að átta tíma leikskóladagur reynir á barn. Í leikskóla er krafa um einhverskonar virkni allan tímann og barn þarf að hafa andlega og líkamlega heilsu til að geta verið í leikskóla.
LAUFÁSBORG er hluti af ykkar baklandi
Við erum saman í liði. Saman erum við sterkari og meðan barn er í leikskóla og umhverfi þess enn tiltölulega einfalt í sniðum er auðvelt að fara í samantekið átak til að auka vellíðan þess og bæta hegðun. Það má alltaf leita til okkar, líka eftir að skóla lýkur. Hvert og eitt foreldri á Laufásborg hefur beinan aðgang að hópstýru/-stjóra síns barns.
Langoftast gengur barni vel á Laufásborg. Hér er skýr og einfaldur rammi, dagskrá skólans er eins alla daga skólaársins og hvert barn tilheyrir kennara og jafningjahóp. Okkar reynsla er að börn kunna vel að meta röð, reglu og rútínu, það eykur öryggi þeirra, þau þiggja taktinn og reyna minna á rammann.
Á Laufásborg er markviss jákvæð hegðunarkennsla sem leggur grunninn að svokallaðri “jákvæðri hjarðhegðun” í barnahópnum. Börnin verða hvert öðru jákvæðar fyrirmyndir, ramminn er gagnsær, einfaldur og skýr (engin grá svæði) og þeim er kennt að sýna hvert öðru kurteisi. Við notum ávarpið “kæra vinkona/kæri vinur” á Laufásborg og sendum þar með þau skilaboð að við séum öll vinkonur og vinir. Hvert barn tilheyrir hóp og í hópatímum förum við í kjark-, nálægðar- og félagsfærniæfingar og á valtíma læra börnin að leika þvert á hópa. Orð eins og “út að leika saman” og “gaman, saman” óma um skólann. Allt leikefni skólans er opinn efniviður og það styður við falleg samskipti. Á hverjum degi æfum við hrós, jákvæðni og þakklæti í gegnum hrós- og þakklætiskortin okkar. Við trúum að við séum að leggja grunninn að dýrmætri færni til frambúðar.
GJAFIR UPPELDISHLUTVERKSINS
Börn “ydda okkur” og í gegnum uppeldið fáum við tækifæri til að bæta okkur sem manneskjur. Við getum alltaf þakkað fyrir það tækifæri.
Börn stilla sig inn á okkur og við lánum þeim taugakerfið okkar. Okkar reynsla er að besta leiðin til að vera til staðar fyrir barn er með því að sýna ró og stillingu, hvort sem við erum í gleðigírnum eða ef við þurfum að leiðbeina/setja barni mörk. Það er gjöf að hafa sterkt taugakerfi til að lána barni.
Kærleikur og agi verða að fara saman, annað getur ekki verið án hins.
Við fáum alvöru æfingu í að hefja okkur yfir aðstæður þegar á reynir. Um leið og við förum úr jafnvægi í samskiptum okkar við barn í ójafnvægi erum við ekki lengur að ráða við aðstæðurnar. Í streituvekjandi aðstæðum er það á okkar ábyrgð að breyta aðstæðunum eða stíga út úr þeim. Þegar í harðbakkann slær - “hvað ætla ég að gera í því?”.
Að líða vel með eigið framlag gefur okkur styrk og eykur andlegt heilbrigði okkar. Samviskubit, efi og áhyggjur veikja okkur. Uppeldishlutverkið er mest krefjandi hlutverk/verkefni sem við tökumst á við og því lýkur aldrei, alltaf hægt að gera betur og meira. Eini fastinn er breytingar, mjög lífrænt hlutverk. Við þurfum að hafa sjálfstraust til að vera sátt við okkar framlag.
HEGÐUNARMÓTUN og að draga úr óæskilegri hegðun
Yfirleitt gengur 90% vel í uppeldinu og barninu gengur vel 75% tímans, sem er raunhæft fyrir barn á leikskólaaldri. Börn læra á lífið með því að reyna á mörkin og stundum festast þau í neikvæðri nálgun á lífið, þá þurfum við að aðstoða þau og hjálpa þeim að læra uppbyggilegri hegðun.
Það er hlutverk okkar sem uppalandi að undirbúa börnin okkar fyrir það að tilheyra samfélagi og fjölskyldu. Lengi býr að fyrstu gerð og það er færni til frambúðar að læra að haga sér vel í samfélagi við annað fólk, að kunna að vera til friðs og láta gott af sér leiða. Það hámarkar lífsgæði okkar og styrkleikar okkar fá að njóta sín. Við viljum öll hámarka lífsgæði barnsins okkar.
Aðstæður spá best fyrir um hegðun. Einfaldasta leiðin til að breyta hegðun barns er að breyta aðstæðum eða taka barnið úr aðstæðunum. Við erum hluti af aðstæðunum, okkar viðbrögð og nálgun. Þarf ég að breyta minni nálgun eða viðurkenna að barnið ræður ekki við ákveðnar aðstæður?
Góð leið til að róa viljasterkt barn er að bjóða því afarkosti, “hvort viltu klæða þig sjálf/ur í skóna eða fá aðstoð?”. Niðurstaðan er alltaf að fara að verða sú sama en barnið skynjar að það hafi val.
Óæskileg hegðun barns = hegðun sem er þess eðlis að hún mun rjúfa félagsleg tengsl barnsins, eins og ef barnið er að meiða/öskra/sýna dónaskap. Óæskileg hegðun grefur alltaf undan vellíðan barnsins, bæði til lengri og skemmri tíma litið. Barnsins vegna þarf að finna leiðir til að draga úr þeirri hegðun.
Ef við sjáum mynstur neikvæðrar hegðunar = sterkasta staðan að koma í veg fyrir að barnið geti sýnt þessa hegðun, fyrirbyggja. Þá þarf að finna út í hvaða aðstæðum barnið sýnir hegðunina og annað hvort breyta aðstæðunum eða hvíla þessar aðstæður tímabundið.
Það er á okkar ábyrgð að brjóta upp styrkingarskilmála sem viðhalda óæskilegri hegðun. Barn sem fær endurtekið að æfa sig í að sýna óæskilega hegðun verður alltaf öflugra og öflugra í þeirri hegðun og þá má segja að það sé eitthvað í aðstæðum barnsins sem er að viðhalda þeirri hegðun.
Inngrip/ný nálgun er nauðsynleg ef það er komið neikvætt mynstur. Þá þarf áætlun um hvernig á að bregðast við þegar barnið sýnir óæskilegu hegðunina, annars er bara “eitthvað að fara að gerast” og líkur á árangri litlar. Þegar áætlun er sett í gang versnar oft hegðun barns áður en hún verður betri þannig að það verður alltaf að gefa nýrri nálgun a.m.k. tvær til þrjár vikur og meta svo stöðuna.
Við þurfum að vera tilbúin að ganga lengra en barnið. Segjum sem svo að barnið meiði okkur eða aðra og við viljum stíga sterk inn og sýna barninu að þessi hegðun sé aldrei í boði þá þurfum við að treysta okkur í verkefnið og vera tilbúin að ganga lengra en barnið. Við afsökum ekki svona hegðun, barnið þarf að skilja að svona megi það ekki haga sér.
- Tökum dæmi: Fjölskyldan fer saman í sund og barnið bítur/slær systkini sitt þá eru það mjög skýr skilaboð til barnsins að fara upp úr, við útskýrum fyrir barninu og fjölskyldunni að sundferðinni sé lokið og það gengur betur næst. Við samþykkjum ekki þessa hegðun. Höfum í huga að við erum alltaf annaðhvort að styrkja jákvæða hegðun barns eða neikvæða hegðun. Við þurfum ekki að segja mörg orð, skilaboðin þurfa bara að vera skýr. Og það er hollt fyrir systkini barnsins að sjá foreldrið stíga sterkt inn og setja skýr mörk.
Barn sem missir stjórn á sér þarf að upplifa að það sé gripið, það er í raun S.O.S. og við þurfum að finna leið til að hefja okkur yfir “kastið”, sýna styrk okkar, ró og jafnvægi. Barn sem er örmagna/í reiðikasti getur aldrei móttekið upplýsingar, við höfum ekkert að vinna með, barnið þarf aðstoð til að ná sér niður. Þegar barnið hefur náð jafnvægi á ný er hægt að ræða málin og benda á hvað hefði mátt betur fara og hvaða hegðun er boðleg.
Allir foreldrar þurfa að fást við erfiða hegðun barns, það er alltaf heilmikil áskorun að ala upp barn, við þurfum að finna leið til að vera örugg og sýna styrk.
Hótun/viðvörun virkar bara ef við ætlum að standa við hana, annars er hún innantóm og birtingarmynd á ráðaleysi. Ef við komum aftur að sundferðinni, fyrir ferðina látum við barnið vita hvað muni gerast ef það meiðir aðra, “til að þér gangi vel í sundi þá stjórnar þú munninum þínum/höndunum, það er í boði að vera með mjúkar vinkonu- eða vinahendur, og ef þú ruglast þá förum við upp úr, þá er sundferðinni lokið”.
Öll athygli er umbun og með athygli getum við óvart verið að styrkja og viðhalda óæskilegri hegðun. Færri orð og eðlileg afleiðing hegðunar (sbr. sundferðin) er oftar áhrifaríkara, tuð og skammir virka ekki.
Umbunarkerfi - þið veljið eina hegðun sem þið viljið bæta og það verða að vera a.m.k. 90% líkur á að barninu takist að sigra. Reynslan sýnir að börn yfirfæra árangurinn og fara að bæta hegðun sína á fleiri sviðum. Umbunarkerfi er að setja skilyrði á það sem barnið hefur nú þegar aðgang að og er sjónrænt skipulag.
Hrós frá foreldrum eftir örnámskeiðin
“Ég skil ekki afhverju það koma ekki allir foreldrar á þessi örnámskeið, ég kem alltaf svo glöð og peppuð heim eftir þessi námskeið, til í næsta áfanga, með skýra sýn og stefnu. Þetta er svo valdeflandi!”.
“Mér finnst ég læra svo margt á þessum námskeiðum”.
“Það er svo gaman að ræða það sem ég elska mest af öllu í heiminum, barnið mitt og hvernig ég get bætt mig sem uppalandi.”
SJÁLFSEFLANDI STAÐHÆFINGAR
“Gerist á bestu bæjum”.
Það er gaman að vanda sig.
Heiðarleiki er fyrsta skrefið.
Uppeldi er seigluverkefni
Við getum leyst þetta.
Hafið trú á getu ykkar til að mæta barninu.
Kjörnun - minna er meira.
“Ég hjálpa þér”.
“Til að þú getir/þér gangi vel…”
Enginn er eyland.
Að fá lánaða dómgreind hjá jákvæðu og hvetjandi fólki.
Notum það sem virkar.
“Og hvað ætla ég að gera í því?”
Æfing í mótlæti er holl og góð fyrir börn.
“Fokið” = tækifærið ekki lengur í boði.
“Þú veist að ég stend við það sem ég segi”.
“Til að þér gangi vel þá ertu þar sem ég er”
Ég þarf að gera eitthvað sem mér þykir erfitt en ég veit að er barninu fyrir bestu.
Látum tímann vinna með okkur.
Þetta mun líða hjá eins og annað.
Stöndum með því sem við höfum trú á.
Að vera jákvæð/ur er að horfa til þess sem vel gengur.
Barn er blessun.
TÖLUM INN Í RAUNVERULEGT DÆMI og skoðum heildarmyndina.
Barn ögrar og meiðir aðra…
Hvernig getum við stigið sterk inn?
Hvernig getum við styrkt stöðu okkar?
Hvernig aukum við heilbrigði í umhverfi barns?
Hvernig getum við stöðvað barnið hér og nú?
Fá lánaða dómgreind - við getum fengið lánaða dómgreind hjá þeim sem við treystum fyrir okkur, fengið speglun og hvatningu. Aðstæður fjölskyldna hafa breyst mjög mikið á síðustu 30-50 árum og sú nálgun sem við ólumst upp við er ekki endilega að virka fyrir okkur þannig að við fáum dómgreind lánaða til að fá hugmyndir og innblástur. Í lok dags er þetta leyst heima í héraði - við þurfum að vinna vinnuna.
Ef við sjáum mynstur þá gerum við það sem við getum til að fyrirbyggja að hegðunin geti endurtekið sig. Við þurfum við að stilla okkur sterk upp og skoða aðstæður barnsins. Hvaða aðstæður ræður barnið við? Í hvaða aðstæðum birtist hegðunin? Hverju getum við breytt svo barninu gangi vel? Það er alltaf einhver undanfari. Sum börn ráða ekki við að fara í Bónus eftir leikskóladaginn, önnur þurfa bara nærveru fullorðinna svo þeim gangi vel á meðan önnur eru sjálfstæðari en þurfa aðstoð við að koma taugakerfinu í jafnvægi ef þau komast í uppnám. Uppeldið og nálgunin fer eftir barninu og þið þekkið ykkar barn best.
Aðstæður spá best fyrir um hegðun. Aðstæður eru ekki bara hvar við erum stödd hverju sinni heldur líka viðbrögð okkar og líðan. Við sköpum andrúmsloftið, setjum tóninn og það skiptir máli hvernig við komum inn í aðstæður, hverju við erum að velja að taka eftir. Að vera jákvæð/ur er að taka eftir því sem vel gengur og hafa orð á því og breyta þar með andrúmsloftinu. Hugsið út fyrir boxið, það má taka barn úr aðstæðum sem það ræður ekki við og setja það í aðstæður sem það ræður við.
Farið inn í aðstæður þannig að ykkur takist að vera sterkari aðilinn.
“Til að þér gangi vel þá ertu þar sem ég er” - börn finna það þegar við getum staðið keik og erum örugg.
Að ala upp barn er tækifæri til sjálfseflingar, æfing í svo mörgu sem gerir okkur að betri manneskjum. Hafið trú á getu ykkar, “við getum þetta!”. Það eru alltaf tímabil inn á milli sem reyna meira á en önnur. Þau líða hjá eins og annað. Gerið ykkar besta til að vera í vellíðan og þakklæti, þið hafið fulla ástæðu til og það er miklu sterkari staða fyrir ykkur og barnið.
Heimahegðun - mjór er mikils vísir. Ef óæskileg hegðun festist í sessi heima fyrir þá er alltaf hætta á að barnið yfirfæri þá hegðun yfir á vinkonur og vini og rjúfi þar með félagsleg tengsl við vinkonur og vini.
Að efla jákvæðni og gleði hjá barni og að peppa barn upp í gleðigírinn er hluti af því að fyrirbyggja. Að stilla barninu og aðstæðum þannig upp að vel gangi er að fyrirbyggja. Við böðum barnið upp úr gleðihormónum og styrkjum það sem við viljum sjá eflast hjá barninu, styrkjum það til frambúðar.
Við þurfum að mæta barninu þar sem það er statt hverju sinni. Barn sem er þreytt eða svangt þarf að grípa S.O.S.. Við þurfum að gefa börnum smá slaka eftir heilan dag í leikskóla, það er álag á börnum. Við stöðvum alltaf alla óæskilega hegðun þar sem barnið er að meiða aðra með orðum eða gjörðum en við getum ekki agað barn sem er þreytt eða svangt. Þegar þau eru komin í jafnvægi á ný getum við rætt málin og lagt línurnar, börn vilja láta ganga vel.
Börn þurfa að æfa sig í að hafa stjórn á skapinu sínu. Við getum leyft okkur að afvegaleiða börn upp að vissum aldri en eftir að þau hafa náð ca. þriggja og hálfs árs aldri þá er eðlilegt að við drögum smám saman úr því og leyfum barninu að mæta sér meira og meira. Við getum andað í takt með þeim til að róa taugakerfið þeirra.
Út með sektarkennd. Treystið því að barnið búi við kjöraðstæður, það er hjá fólki sem elskar það og vill því vel og það býr við reglusemi og stöðugleika. Horfum í það sem er heilbrigt og trúið því að barnið sé lánsamt, “það er ævintýri að vera þú…(nafn barns)”. Eftir heilan dag á Laufásborg koma börn södd og sæl heim, andlega og líkamlega, þau hafa fengið útiveru, örvun, leikið við vini og vinkonur í öryggi. Það er búið vel að þeim og það er enginn skortur á neinu. Í hvíldinni vinnur heilinn úr öllu áreitinu, hvíld verður að vera hluti af heildarjöfnunni.
Við erum ekki að vinna með fullkomleikann, það er alltaf þessi mannlegi þáttur. Það styrkir okkur í foreldrahlutverkinu að horfa til þess góða sem barnið býr að og sem við höfum fram að færa í stað þess að einblína bara á það sem miður fer eða sem við getum ekki stjórnað.
Ef við náum ofangreindri stillingu á hegðun okkar og viðhorfum þá mun draga úr neikvæðri hegðun en samt getur það komið fyrir að barn missi stjórn á skapi sínu og meiði aðra. Þá þurfum við að vera tilbúin að setja barninu mörk af ákveðni og kærleika og róa taugakerfi þess.
Barn sem meiðir þarf einföld og skýr skilaboð. Það er aldrei afsökun fyrir því að barn meiði. Við réttlætum ekki að barn meiði og hvað þá í eyru barnsins. Segjum sem svo að barnið slái þig, foreldri barnsins, þá getum við valið að segja rólega en ákveðið til að mynda eftirfarandi…:
“Þú stjórnar höndunum þínum, þú lemur mig ekki”. Og við tökum stjórnina og tökum í hendur barnsins til að koma í veg fyrir að barnið slái aftur.
Stundum reynir barn að ná yfirhöndinni með því að segja á móti “þú meiðir mig” en þá er ofsalega mikilvægt að við höldum ró okkar, við vitum hvað við erum að gera, við þurfum að ná stjórn á aðstæðum og stöðva barn af sem er að sýna ofbeldi. Barnið finnur að þú veist hvað þú ert að gera, þú sýnir styrk. Ef barnið kemst í mikið uppnám og þarf meiri aðstoð þá er oft gott að halda í hendur þess og ANDA rólega inn og út, það róar taugakerfi þess. Barnið er gripið og það nær jafnvægi á ný.
Aðalmálið er að uppeldi sé líka áhugamál, við verðum að brenna fyrir þessu - þetta er svo mikið langtímaverkefni. Verið sjálfum ykkur samkvæm, þið vitið hvað þið viljið sjá í börnunum ykkar, standið með því. Það er ykkar að leysa málin, það er engin/n að fara að leysa þetta fyrir ykkur, og þið þurfið að STÍGA STERK INN. Mikill galdur. Einn dagur í einu, eitt skref í einu. Eini fastinn er breytingar, börn eru lifandi efniviður og verkefnið er afar lífrænt.
Að æfa þakklæti, þakklæti er stærsta gjöfin. Á kvöldin er hægt að finna eitthvað þrennt sem þú ert þakklát fyrir og byrja hvern dag á að þakka fyrir daginn.
Við erum aldrei að vinna með það að vera fullkomin, það má ruglast, það má gera mistök og það gengur betur næst. Ef við lítum í baksýnisspegilinn þá erum við alltaf að fara að sjá að við hefðum getað gert betur en við veljum að bögga okkur ekki fyrir það, við getum lært af því og gert betur næst. Við veljum heilbrigða sýn og það gerir okkur sterkari að sætta okkur við að mannlegi þátturinn verður alltaf hluti af jöfnunni. Foreldri með samviskubit, áhyggjur og efa er að veikja sig og sína stöðu. Um leið og við veljum að láta okkur líða vel með okkur sem foreldri þá erum við sjálfkrafa komin í sterkari stöðu. Við trúum því að við erum besta foreldrið fyrir okkar barn, við erum að gera okkar besta og við gefum okkur leyfi til að líða vel með okkar framlag.
Virðing og samkomulag milli fullorðinna í uppeldi er gjöf til barns. Ef barn á tvo foreldra eða fleiri þá er það forsenda þess að vel gangi að velja að virða það að við sem uppalendur erum ólík. Við erum sammála um að við viljum það besta fyrir barnið og uppeldi er samvinnuverkefni. Þar sem virðing og samkomulag ríkir eiga átök aldrei erindi.
Gangi okkur allt að sólu.
13. október 2026
ÖRNÁMSKEIÐ á Laufásborg
Yfirskrift - valdefling foreldra
“Þú kannt alveg að vera mamma” 🙂
…sagði ein tíu ára Laufásborgarstúlka þegar hún heyrði hvert mamma hennar var að fara
- Börnin eru heil eins og þau eru
- Hvað ætla ég að gera í því? það er svo gott að spyrja sig þessarar spurningar því með henni tökum við eignarhald á líðan okkar og það getum við unnið með. Alltaf að stíga inn og spyrja sig og taka þetta eignarhald því þar liggja okkar tækifæri hjá okkur sjálfum. Vera sinn gæfusmiður.
UPPELDI = flóknasta starfið
- Engin fjölskylda eins…
- Hvað viljum við fyrir okkur sem fjölskyldu?
- Við verðum að hafa sjálfstraust til að standa með okkar sannfæringu
- Við og okkar sýn/nálgun mun “detta í og úr tísku”
- Skýr sýn => fljótar aftur upp á línuna
- Við höfum vit á að segja “nei takk” við því sem hentar okkur ekki
- Vinnan er alltaf að fara að verða okkar
- Öll að fást við það sama og öll að gera okkar besta
- Æfingin er þegar barni tekst
- Grunnlínan er alltaf vellíðan
- Dæmi: Það gengur ekki vel => böggum okkur, verðum pirruð = ekki góður staður að vera á…
- Anda ÁÐUR en við bregðumst við og hafa trú á sjálfum sér
- Bakka, kannski vorum við að fara of hratt
- Skoða aðstæður, þær spá best fyrir um hegðun
- Okkur skortir ekkert
- Finna fast land undir fótum
- Dæmi:
Vanlíðan => dettum í skortshugsun, okkur finnst eitthvað vanta…
- Rannsóknir hafa sýnt að þá förum við að bæta á okkur verkefnum, eins og til að sanna fyrir okkur og öðrum að við séum enn sterk
- Lausnin gæti allt eins verið að draga saman seglin
- Finna jafnvægi á ný, vellíðan
- Við þurfum að taka EIGNARHALD á okkur og okkar líðan
- Við eigum þetta
- Við getum bara unnið með það sem við eigum = VALDEFLANDI SÝN!
- Verum orðvör
- Vöndum hugsanir okkar = VALDEFLANDI
- Öndum áður en við bregðumst við = VALDEFLANDI
- Allt mætir okkur sjálfum fyrst
=> tölum fallega um aðra eða sleppum því
- Ekki segja “ekki” = breytir öllu!!
- Orð - veljið orð sem styrkja ykkur og barnið
- Áhugi á innri líðan og mannrækt
- Áskorun á hverjum degi
- Skemmtilegt og valdeflandi verkefni
- Lífið streymir til okkar, eini fastinn
- Það er ekki alltaf bara gaman
- Ef grunnlínan er jafnvægi og vellíðan þá erum við STERKARI þegar á reynir
- Grunnlína = barn í vellíðan
- Barn í vellíðan lærir betur
- Barn í öryggi og skapandi aðstæðum = læra meira en við getum kennt þeim
- Mesta áskorun lífsins
- Halda heilsu
- Að ala upp barn
- Að verða foreldri
- Sjá þakklætið í því að börnin “ydda” okkur, skerpa okkur
- Laga fyrst til heima hjá okkur, barn í vellíðan og öryggi = fljúgandi fært og allt annað verður margfalt léttara
- MÖRK og KÆRLEIKURINN
- Að barn hafi stöðu barns = öryggi barns
- Ungir foreldrar í dag svo kærleiksríkir
- Skuggahliðin er “misskilin góðmennska” og þá getum við verið “þroskaþjófar” barnanna og rænum barnið tækifæri til að reyna á sig
- Ekki taka sjálfstraustið af barninu til að auka okkar eigið…
- “NEI” = heilbrigt að barn ráði við að fá “nei” fyrir svar = æfing í mótlæti
- Svo einn daginn verðum við öll fullorðin => nægur tími til að verða vinir/vinkonur seinna
- Ekki einn mælikvarði á hvað er að vera gott foreldri
- Við getum verið að vinna mikið en við finnum leið
- Við erum mörg sem komum að uppeldi barnanna
- Það má láta reyna á þau, börn geta allskonar, eru duglegri og sterkari en við höldum
- Við erum ólík
- Það má ruglast = VALDEFLANDI HUGSUN
- Mikill galdur að finna jafnvægið
- Foreldrahlutverkið er seigluverkefni
- Ef við erum “alltaf að bíða betri tíma” = streituvaldur
- Of mikil fortíð => depurð
- Of mikil framtíð => kvíði
- Að stíga inn í NÚIÐ = VALDEFLANDI
- Eigum bara daginn í dag
- Við höfum það gott, eigum ekki bágt
- Það er alltaf eitthvað að þakka fyrir
- Þakklætisæfingar að morgni eða kvöldi = geðrækt sem virkar
- Að taka fullt EIGNARHALD Á STÖÐUNNI = VALDEFLANDI
- Afsakanir eru fyrirstaða
- “Já en” = mótstaða
- Lausnamiðuð hugsun í mótlæti = “ok, þetta er staðan”, “gengur betur næst” og “HVAÐ ÆTLA ÉG AÐ GERA Í ÞVÍ?”
- Allt er æfing í einhverju = “TAKK FYRIR ÆFINGUNA”
- Eina sem við ráðum við eru viðbrögð okkar við aðstæðum
- Mótlæti, taka ekki of persónulega
- Alltaf undir okkur sjálfum komið hvernig okkur líður
- TÍMI og ORÐ eru dýrmætur efniviður = ÓKEYPIS
- Mannrækt - að standa sterk
- Vera í deginum í dag
- Lífið er seigluverkefni
- Að láta tímann vinna með sér
- Lítil skekkja = stoppa þar, annars vinda þær upp á sig og verða að stórum skekkjum
- Klæðum okkur í GLEÐIGALLANN
- Lífið er SKÖPUNARVERK
- JÁKVÆÐNI er auður
- Sterkasta staðan = að líða vel með ykkur sem foreldri
- Þið eruð alltaf besta foreldrið fyrir barnið ykkar
- Vanda orðin sín
- Minna er meira
- Getum alltaf valið að láta gott af okkur leiða
- Veljum að skapa FÆRNI TIL FRAMTÍÐAR hjá börnunum - getum spurt okkur, er þetta færni sem nýtist barninu til framtíðar og styrkir barnið?
- Mannbætandi samfélag - leiðarljós okkar á Laufásborg
- Þökkum fyrir styrkleika hvers annars
- Það er virðing af heiðarleika
- Veikleikarnir koma með
- Traust
- Tölum við hvert annað
- Förum með málin þangað sem þau eiga heima
- Börn eru svo nálægt sér, svo sönn
- Tilgangur lífsins, komumst ekki nær tilgangi lífsins
- Börn eru mesta uppspretta LÍFSORKUNNAR
- Að lyfta barni…
- Við viljum öll hámarka lífsgæði barnanna okkar
- Allt í lagi að gera kröfur á börn
- Börn eru svo opin og dugleg
- Á Laufásborg erum við alltaf að vinna með að hækka rána, börn læra frá unga aldri að HRÓSA, sýna og tjá ÞAKKLÆTI, læra að kveða, læra flókna texta, bæði íslenska og erlenda svo eitthvað sé nefnt
- Kúnst að finna jafnvægið, börn í dag að “drukkna úr athygli”
- Gefum börnum frið, nærvera okkar dugar, það þarf enga skemmtidagskrá
- SKÓLASAMFÉLAGIÐ
- Eðlileg krafa að vilja eiga góð samskipti við fólkið sem annast börnin okkar
- Börnin okkar eru það dýrmætasta sem við eigum
- Ef þjónustan í skólanum er ekki persónuleg, hvar þá?!
- Þjónustustarf - öll störf eru í eðli sínu þjónustustörf, að helga líf sitt því að ala annarra manna börn upp er einstök og persónuleg þjónusta
- Starfið er þess eðlis, það er persónulegt
- Kærleiksríkur agi
- Stígið sterk inn, örugg
- Börn lesa okkur og orkuna okkar áður en við segjum orð, þau finna strax hvort við erum í jafnvægi eða ekki
- Að hika er sama og að tapa
- “Viltu, viltu…?” = valdsviptir okkur gagnvart barninu
- Við þurfum að treysta okkur til að ganga lengra en barnið ef barnið er ítrekað að ögra eða reyna á rammann
- Galdurinn er að vera í jafnvægi þegar á reynir
- Vera með sterkt taugakerfi
- Börn skynja styrkinn okkar
- Anda áður en við bregðumst við
- Lífið er vinna, hvoru megin ætlar þú að vera?
- Við erum ekki fórnarlömb
- Þurfum ekki drama
- Viðnám = streita
- “JÁ OG…” = lausnamiðuð nálgun. JÁ EN…er viðnám við lífið.
- Tökum hismið frá kjarnanum, drögum saman seglin
- Veljið að vera ánægð með ykkur
- Verið sjálfum ykkur samkvæm/ur = skapar stöðugleika
- Reynslan hefur kennt okkur að börn vilja fá þetta frá okkur, stöðugleikann
- Lækka þjónustustigið, ekki vanmeta börnin þín, þau eru svo klár!
- Endalaus uppspretta að starfa með börnum, við brennum fyrir því að skapa góðan skóla fyrir börn á hverjum degi, svo lífrænt og skapandi starf…
- Jensa Reykvíkingur ársins = TIL HAMINGJU VIÐ!!
- “Ég er því við erum” 🙂
