Kvæðabarnafjelag Laufásborgar stofnað 8.mars 2023
Stórvinur okkar og kvæðamaður, Steindór Andersen hafði unnið með okkur á hverju ári frá 2008 við að kenna kveðskap og gleðja okkur með því að kveða fyrir okkur og gesti. Við ákváðum í sameiningu í janúar 2020 að taka saman efnið og gefa það út í hefti. Hann fékk Hilmar vin sinn með sér í lið og þeir tóku upp efnið. Steindór skrifaði niður lögin og gerði það af sinni alkunnu snilld. Júlía Runólfs, móðir og hönnuður kom að hönnun heftisins. Úr varð falleg útgáfa sem við erum stolt af og endalaust þakklát fyrir. Þetta farsæla og fallega samstarf var óslitið fram til ársins 2024 en elsku Steindór lést 2025, blessuð sé minning þess mæta manns, hann var þjóðargersemi.
Það var svo á vorönn 2023 sem við ákváðum að stofna Kvæðabarnafjelag Laufásborg. Hér er linkur á skemmtilega frétt um þetta fallega verkefni okkar.
