Foreldraráð

Foreldraráð:

Kristín Manúelsdóttir

Kristín Bergsdóttir

Árni Grétar Finnsson

Við höfum ásamt foreldrafélaginu ákveðið að prófa nýja leið með "foreldrafélags" hugmyndina. Það er ekki í lögum að foreldrafélag sé starfandi í skólanum. Foreldraráð er starfandi skv. lögum og fer yfir lögbundin gögn og gerir það áfram.

Nýja leiðin er að við erum öll sem eitt foreldrafélagið. Við erum að breyta skipulaginu frá því að nokkrir foreldrar mæti á fund yfir í það að hafa þetta þannig að hvert framlag er eins og hver vill og hverjum hentar.

Áfram verður gjaldkeri og foreldrar greiða 650 krónur í sjóðinn á mánuði og rennur peningurinn óskiptur til barnanna.

Við erum þakklát fyrir að það er gott samband og traust milli heimilis og skóla.

Foreldraframlögin streyma til okkar og stækka skólann alla daga.

Það sem stendur út af er Sumarhátíðin sem er alltaf svo stórkostleg. Það kom sú hugmynd að þær fjölskyldur sem eru að kveðja skólann haldi hátíðina. Þetta er "bless og takk fyrir okkur" hugmynd. Hjarta í hjarta.